Patrick Vieira, er maðurinn sem David Beckham vill fá til að stýra Inter Miami en liðið fer af stað á nýju ári. Beckham hefur verið að stofna MLS, liðið síðustu ár og mánuði.
Beckham vildil fá Carlo Ancelotti eftir að hann hætti með Napoli en hann er að ganga frá samningi við Everton.
Vieira er að stýra Nice í Frakklandi en hefur starfað í MLS deildinni með New York City.
Vieira og Beckham voru í raun óvinir til margra ára þegar Manchester United og Arsenal voru bestu lið Englands.
Vieira var einn þeim sem var orðaður við stjórastöðu Arsenal en Mikel Arteta fékk starfið. Beckham vill ráða inn stjóra á næstu vikum til að byrja að sækja sér fleiri leikmenn.