Arsenal hefur staðfest ráðningu á Mikel Arteta, hann tekur við sem knattspyrnustjóri félagsins en viðræður hafa staðið yfir í fimm daga.
Arteta var áður aðstoðarþjálfari Manchester City en gerir þriggja og hálfs árs samning við Arsenal.
Unai Emery var rekinn á dögunum og Freddie Ljungberg hefur stýrt liðinu tímabundið, hann stígur nú til hliðar eftir leikinn gegn Everton á morgun.
Þar sem Arteta hefur ekki stýrt einni æfingu verður hann í stúkunni þegar Arsenal heimsækir Everton í hádeginu á morgun. Hér að neðan eru fyrstu leikir hans í starfi.