fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
433Sport

Þetta eru launin sem Haaland er sagður vilja fá hjá United

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. desember 2019 13:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erling Haland, einn allra efnilegasti leikmaður heims, er orðaður við mörg lið þessa dagana. Haland er aðeins 19 ára gamall en hann spilar með RB Salzburg í Austurríki og hefur skorað mikið þar. Manchester United er talið hafa áhuga á Haland. Stuðningsmenn United urðu spenntir í fyrradag eftir mynd sem Haland birti á Instagram

Þar má sjá leikmanninn árita treyju United fyrir aðdáanda og spurning hvort það gefi eitthvað í skyn. Hann birti svo í kjölfarið myndir af sér að árita fleiri treyjur. VG hefur greint frá því að Haaland hafi verið með styrktarkvöld í Noregi í, þar hafi hann verið beðinn um að árita myndina. Hann er því ekki á barmi þess að skrifa undir hjá félaginu. Á styrktarkvöldinu kom einn með United treyju og bað Haaland að krota á hana.

Ensk blöð segja í dag að United ræði við Haaland og umboðsmann hans, Mino Raiola. Þau segja að Raiola fari fram á 12 milljónir punda frá United. Raiola er umdeildur, umboðsmaður. Hann hugar fyrst og síðast um veskið, hann vill því tæpa 2 milljarða frá United ef Haaland á að krota undir. United hefur ekki alltaf farið vel úr viðskiptum við Raiola en hann kom með Paul Pogba til félagsins eftir að hafa ráðlagt honum að fara frá United, nokkrum árum áður. Hann hagnaðist vel á kaupum United á Pogba.

Ensk blöð segja að Haaland vilji fá 6,8 milljónir punda í árslaun, Leipzig í Þýskalandi hefur ekki áhuga á að borga slík laun. Um er að ræða 1,1 milljarð íslenskra króna í árslaun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Verður þetta byrjunarlið Liverpool á næstu leiktíð? – Slot vill fá inn framherja

Verður þetta byrjunarlið Liverpool á næstu leiktíð? – Slot vill fá inn framherja
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gerir upp kjaftasöguna þegar hann var sakaður um að vera að sofa hjá dóttur yfirmannsins

Gerir upp kjaftasöguna þegar hann var sakaður um að vera að sofa hjá dóttur yfirmannsins
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Margir furða sig á niðurstöðu KSÍ – „Það er fyrir mér algjörlega óskiljanlegt“

Margir furða sig á niðurstöðu KSÍ – „Það er fyrir mér algjörlega óskiljanlegt“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Arsenal reynir við varnarmann en fær samkeppni

Arsenal reynir við varnarmann en fær samkeppni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Liverpool staðfestir kaup á tæpa 7 milljarða

Liverpool staðfestir kaup á tæpa 7 milljarða
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Til Manchester United á tómbóluverði?

Til Manchester United á tómbóluverði?
433Sport
Í gær

Ronaldo verður áfram – Halda því fram að hann ráði öllu í sumar

Ronaldo verður áfram – Halda því fram að hann ráði öllu í sumar
433Sport
Í gær

Niðurstaða komin í harðar deilur nágranna – Sættust ekki á hvað gera ætti við trén

Niðurstaða komin í harðar deilur nágranna – Sættust ekki á hvað gera ætti við trén