Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, veit ekki hvenær varnarmaðurinn Virgil van Dijk verður orðinn klár.
Van Dijk spilaði ekki í gær er Liverpool vann Monterrey 2-1 í undanúrslitum HM félagsliða vegna meiðsla.
Jordan Henderson spilaði í hafsent ásamt Joe Gomez en ekki er víst að Van Dijk nái úrslitaleiknum um helgina gegn Flamengo.
,,Við höfum ekki hugmynd um Virgil, við héldum að hann yrði í lagi,“ sagði Klopp.
,Við sjáum til. Það var auðveld ákvörðun að spila honujm ekki. Hann gat ekki æft um morguninn.“
,,Það var erfitt fyrir Jordan Henderson að höndla þetta en ég veit ekki hversu lengi Virgil veður að jafna sig.“