Freddie Ljungberg, tímabundinn stjóri Arsenal átti að ræða við fréttamenn á fundi í dag. Búið er að fresta fundinum.
Fundurinn fer fram á morgun fyrir leikinn gegn Everton um helgina, í ensku úrvalsdeildinni.
Arsenal vonast til þess að kynna Mikel Arteta, sem nýjan stjóra félagsins áður en fundurinn fer fram á morgun.
Arteta er aðstoðarþjálfari City í dag en hann hefur fundað með Arsenal frá því á sunnudag. Arsenal þarf að semja við City um að losa Arteta frá störfum.
Arteta kvaddi leikmenn City í morgun á æfingasvæðinu, The Athletic segir að Arteta hafi verið gráti næst þegar hann kvaddi leikmennina. Hann hafi talað um frábæra tíma með þeim og að stundin hafi verið erfið fyrir hann. Búist er við að Arsenal gangi frá ráðningu á honum, í fyrramálið.