Cristiano Ronaldo gæti vel endað ferilinn hjá Juventus en hann er samningsbundinn til ársins 2022.
Þetta staðfesti umboðsmaður hans Jorge Mendes í gær en Ronaldo verður 37 ára gamall er samningurinn endar.
Ronaldo hefur staðið sig með prýði á Ítalíu en hann kom frá Real Madrid síðasta sumar.
,,Hjá Juventus þá er hann mjög ánægður og er að vinna með frábærum stjóra,“ sagði Mendes.
,,Já hann gæti vel endað ferilinn hjá Juventus – hann hefur skrifað undir samning.“