fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
433Sport

Manchester liðin fóru örugglega áfram – Everton úr leik

Victor Pálsson
Miðvikudaginn 18. desember 2019 21:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Everton er úr leik í enska deildarbikarnum eftir leik við Leicester í spennandi slag á Goodison Park.

Everton var slakt í fyrri hálfleik í kvöld og leiddi Leicester sanngjarnt 2-0 eftir fyrstu 45 mínúturnar.

Tom Davies tókst að laga stöðuna fyrir heimamenn í seinni hálfleik og voru lokamínúturnar spennandi.

Á 91. mínútu þá skoraði Leighton Baines frábært mark fyrir Everton með langskoti og tryggði liðinu vítakeppni.

Í vítakeppninni hafði Leicester þó betur en Kasper Schmeichel varði tvær spyrnur frá heimamönnum og fara gestirnir áfram.

Manchester City spilaði á sama tíma við smálið Oxford en leikið var á útivelli.

Englandsmeistararnir voru ekki í miklum vandræðum með Oxford í leik sem endaði með 1-3 útisigri.

Manchester United er einnig komið áfram en liðið vann sannfærandi 3-0 heimasigur á Colchester.

Everton 2-2 Leicester City (Leicester áfram eftir vítakeppni)
0-1 James Maddison
0-2 Jonny Evans
1-2 Tom Davies
2-2 Leighton Baines

Oxford 1-3 Manchester City
0-1 Joao Cancelo
1-1 Matt Taylor
1-2 Raheem Sterling
1-3 Raheem Sterling

Manchester United 3-0 Colchester
1-0 Marcus Rashford
2-0 Ryan Jackson(sjálfsmark)
3-0 Anthony Martial

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United reynir að selja en enginn vill kaupa

United reynir að selja en enginn vill kaupa
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Faðir nýjasta leikmanns Liverpool vekur mikla athygli eftir að hafa birt þetta myndband

Faðir nýjasta leikmanns Liverpool vekur mikla athygli eftir að hafa birt þetta myndband
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tottenham lögsækir Ratcliffe og vilja fá 1,8 milljarð

Tottenham lögsækir Ratcliffe og vilja fá 1,8 milljarð
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Verður þetta byrjunarlið Liverpool á næstu leiktíð? – Slot vill fá inn framherja

Verður þetta byrjunarlið Liverpool á næstu leiktíð? – Slot vill fá inn framherja
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Arsenal reynir við varnarmann en fær samkeppni

Arsenal reynir við varnarmann en fær samkeppni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Á átta ár eftir af samningi sínum en þeir eru til í að selja

Á átta ár eftir af samningi sínum en þeir eru til í að selja
433Sport
Í gær

Myndband: Ótrúleg uppákoma í sundlaugargarði á Spáni – Bera kennsl á manninn sem grýtti stól í konu

Myndband: Ótrúleg uppákoma í sundlaugargarði á Spáni – Bera kennsl á manninn sem grýtti stól í konu
433Sport
Í gær

Liverpool staðfestir kaup á tæpa 7 milljarða

Liverpool staðfestir kaup á tæpa 7 milljarða