Monterrey 1-2 Liverpool
0-1 Naby Keita(12′)
1-1 Rogelio Funes(14′)
1-2 Roberto Firmino(91′)
Liverpool spilaði leik í undanúrslitum heimsmeistarakeppni félagsliða í kvöld gegn Monterrey frá Mexíkó.
Fyrir leikinn var Liverpool talið sigurstranglegra liðið enda um Evrópumeistarana sjálfa að ræða.
Monterrey reyndist þó góður andstæðingr fyrir Liverpool en það var boðið upp á spennandi leik í Katar.
Naby Keita kom Liverpool yfir snemma leiks en Monterrey jafnaði aðeins tveimur mínútum síðar.
Staðan var 1-1 alveg þar til á 91. mínútu er varamaðurinn Roberto Firmino tryggði Liverpool sigurinn.
Liverpool mun því leika við brasilíska liðið Flamengo í úrslitum.