Manchester City er komið áfram í undanúrslit enska deildarbikarsins eftir leik við Oxford United.
Oxford leikur í þriðju efstu deild en City er Englandsmeistari og var því mun sigurstranglegra í kvöld.
City hafði betur að lokum með þremur mörkum gegn einu en Oxcford tókst að jafna metin í 1-1.
Það sem er ansi sturlað við þennan leik er að City fékk á sig 18 skot í leiknum sem hefur aldrei gerst undir Pep Guardiola.
Oxford er því það lið sem hefur náð flestum skotum að marki City síðan Guardiola tók við árið 2016.
Shots: 18-18
Shots on target: 5-4
Pass accuracy: 78%-88%
Possession: 34%-66%The most shots Manchester City have faced since Pep Guardiola took charge in 2016. 😳 https://t.co/5dxs56W1RX
— Squawka Football (@Squawka) 18 December 2019