Inter Milan vill fá Nemanja Matic, miðjumann Manchester United í janúar. Þetta fullyrðir Telepgrah.
Matic er ekki í plönum Ole Gunnar Solskjær til framtíðar, hann fær lítið að spila en Matic er 31 árs gamall.
Matic er efstur á óskalista Antonio Conte, þjálfari Inter vill styrkja lið sitt í janúar og horfir til Matic.
Inter tók Romelu Lukaku og Alexis Sanchez frá United í sumar og Conte vill sækja þriðja bitann.
Matic kom til United frá Chelsea árið 2017 og eftir gott fyrsta ár hefur hressilega hallað undan fæti hjá Matic.