Medhi Benatia, fyrrum varnarmaður FC Bayern segir að Pep Guardiola sé lélegur í mannlegum samskiptum. Guardiola keypti Benatia frá Roma til Bayern.
Varnarmaðurinn fann sig ekki vel hjá Bayern en félagið borgaði 22 milljónir punda fyrir hann, árið 2014 þegar Guardiola var stjóri liðsins.
,,Það eru margir sammála mér, þegar rætt er um Guardiola. Hann er lélegur í mannlegum samskiptum,“ sagði Benatia.
,,Hann segir að það sé vegna þess að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum í fortíðinni.“
,,Hann sagði við mig að hann hefði keypt mig og viljað fá mig. Ég hefði hæfileika, hann sagðist ætla að kenna mér að verða betri en hann sagði mér að við yrðum aldrei vinir.“