Adama Traore, leikmaður Wolves, skoraði flott mark í 2-1 tapi gegn Tottenham um helgina.
Traore hefur spilað vel með Wolves á leiktíðinni en hann er fyrrum vonarstjarna Barcelona.
Traore er gríðarlega fljótur og sterkur leikmaður og er líklega fljótasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.
Leikmenn Tottenham ræddu við Jose Mourinho eftir leikinn um helgina og sögðu honum að kaupa Traore.
Football Insider greinir frá þessu en leikmenn Tottenham voru mjög hrifnir af Traore og viðurkenndu vandræði gegn honum.