Crystal Palace 1-1 Brighton
0-1 Neal Maupay(54′)
1-1 Wilfried Zaha(76′)
Það fór fram einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en leikið var á Selhurst Park.
Brighton heimsótti Crystal Palace í lokaleik umferðarinnar og var boðið upp á fínasta leik.
Brighton var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta það til að komast yfir.
Neal Maupay skoraði fyrsta mark leiksins á 54. mínútu fyrir Brighton og var það sanngjarnt.
Palace tók þó við sér eftir það mark og skoraði Wilfried Zaha jöfnunarmark á 76. mínútu.
Bæði lið ógnuðu því að skora sigurmark en inn vildi boltinn ekki og lokastaðan, 1-1.