Angel Gomes, ein af vonarstjörnum Manchester United er pirruð og vill burt frá félaginu. Hann fær fá tækifæri, samningur hans er á enda í sumar.
Gomes er 19 ára gamall, sóknarsinnaður miðjumaður. Um helgina fór hann að eyða út færslum tengdum United af samfélagsmiðlum.
Þá ákvað að Gomes að taka út að hann væri leikmaður Manchester United, á Instagram síðu sinni. Þetta gerði hann eftir að hafa fengið fá tækifæri.
Barcelona og Real Madrid hafa haft áhuga á Gomes en hann hefur ekki náð að heilla Ole Gunnar Solskjær með frammistöðum sínum.
Gomes er í yngri landsliðum Englands en hann er einn sá besti sem komið hefur úr unglingastarfi félagsins, síðustu ár.