Carlo Ancelotti, fyrrum stjóri Real Madrid og Chelsea, er mættur til Liverpool til að funda með Everton.
Sky Sports greinir frá þessu í kvöld en Everton leitar að eftirmanni Marco Silva þessa stundina.
Ancelotti er mjög þekkt nafn í knattspyrnunni en hann var síðast hjá Napoli en var rekinn nýlega.
Ítalinn þekkir ágætlega til Englands en hann vann deildina og bikarinn með Chelsea á sínum tíma.
Gylfi Þór Sigurðsson spilar með Everton og ljóst er að hann gæti blómstrað undir stjórn Ancelotti.