Paul Pogba miðjumaður Manchester United hefur ekki getað spilað með liðinu síðustu mánuði vegna meiðsla í ökkla.
Pogba hefur hafið æfingar með liðinu en ekkert getað spilað, hann vill fara frá félaginu en ekki fengið það.
United býst við því að Pogba geti byrjað að spila á næstu vikum en miðsvæði liðsins, er þunnskipað.
Meiðsli Pogba í ökkla eru að hverfa á braut ef marka má myndband frá helginni, þar var hann mættur í brúðkaup hjá bróður sínum.
Þar dansaði Pogba eins og óður maður og var í góðum gír, eins og sjá má hér að neðan.
Paul Pogba at his brothers [ Florentin Pogba] wedding today.
La Pogbance 🕺🏿 #mufc pic.twitter.com/ESnTwyXQgF
— ManUnitedZone (@ManUnitedZone_) December 15, 2019