Aron Sigurðarson, fyrrum leikmaður Fjölnis, er á leið í belgísku B-deildina eftir dvöl í Noregi.
Frá þessu greinir blaðamaðurinn Guðmundur Hilmarsson en Aron er á mála hjá Start í dag.
Aron spilaði stórt hlutverk með Start á tímabilinu en hann skoraði 13 mörk í 29 deildarleikjum er liðið fór upp um deild.
Hjá Start vinnur Aron með Jóhannesi Harðarsyni sem er þjálfari liðsins en það samstarf er komið á leiðarenda.
Guðmundur fullyrðir það á Twitter-síðu sinni að Aron sé að ganga í raðir Royale Union Saint-Gilloise í belgísku B-deildinni.
Það er mikill skellur fyrir Start sem vann Lillestrom í umspilsleikjum til að tryggja sætið í efstu deild.
Jói Harðar, þjálfari Start, að missa einn sinn besta mann. Aron Sigurðarson búinn að semja við belgíska B-deildarliðið Royale Union Saint-Gilloise.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) 16 December 2019