Mikel Arteta er að taka við liði Arsenal en frá þessu greina enskir miðlar.
Arteta er fyrrum leikmaður Arsenal en hann hefur undanfarin ár verið aðstoðarþjálfari Manchester City.
Þar vinnur Arteta með landa sínum Pep Guardiola og hefur væntanlega lært ófáa hluti í því starfi.
Samkvæmt the Daily Mail mun Arteta funda með Josh Kroenke, syni eiganda félagsins, í kvöld.
Það verður síðasti fundurinn sem haldinn verður áður en Arteta verður endanlega ráðinn stjóri liðsins.