fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
433Sport

Táningurinn kom Manchester United til bjargar – Dramatískur sigur Tottenham

Victor Pálsson
Sunnudaginn 15. desember 2019 15:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United þurfti að sætta sig við stig á Old Trafford í dag er liðið mætti Everton.

Það var boðið upp á hörkuleik á Old Trafford en United lenti undir eftir 24 mínútur er Victor Lindelof skoraði óvart sjálfsmark.

Staðan var 0-1 þar til á 77. mínútu er Mason Greenwood jafnaði fyrir United eftir að hafa komið inná.

Greenwood er einn allra efnilegasti leikmaður United en hann hafði verið inná í aðeins 12 mínútur.

Þrátt fyrir 24 marktilraunir hjá heimamönnum urðu mörkin ekki fleiri og niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Á sama tíma áttust við Wolves og Tottenham þar sem Tottenham hafði betur í dramatískum leik.

Staðan þar var 1-1 þar til á 91. mínútu er Jan Vertonghen tryggði gestunum dýrmæt þrjú stig.

Manchester United 1-1 Everton
0-1 Victor Lindelof(sjálfsmark, 36′)
1-1 Mason Greenwood(77′)

Wolves 1-2 Tottenham
0-1 Lucas(8′)
1-1 Adama Traore(6′)
1-2 Jan Vertonghen(91′)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Mbappe höfðar mál gegn PSG og sakar félagið um ýmisleg brot

Mbappe höfðar mál gegn PSG og sakar félagið um ýmisleg brot
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Víkingur staðfestir ráðningu á Einari Guðna

Víkingur staðfestir ráðningu á Einari Guðna
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Svona verða 16 liða úrslitin á HM félagsliða – Margir áhugaverðir leikir

Svona verða 16 liða úrslitin á HM félagsliða – Margir áhugaverðir leikir
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United mun sætta sig við lægra verð á Garnacho til að losna við hann

United mun sætta sig við lægra verð á Garnacho til að losna við hann
433Sport
Í gær

Þetta er það eina sem sem þarf að klára svo Mbeumo fari til United

Þetta er það eina sem sem þarf að klára svo Mbeumo fari til United
433Sport
Í gær

Ungur drengur lést í aðgerð sem átti ekki að vera hættuleg

Ungur drengur lést í aðgerð sem átti ekki að vera hættuleg