Freddie Ljungberg, tímabundinn stjóri Arsenal, grátbiður félagið um að leyfa sér að ráða inn starfsfólk.
Unai Emery var rekinn frá Arsenal nýlega og tók Ljungberg við – óvíst er hversu lengi hann verður við stjórnvölin.
Margir starfsmenn fylgdu Emery burt frá Arsenal og vill Svíinn fá að ráða sitt fólk til að hjálpa til.
,,Ef þú horfir á þann mann sem var hérna áður þá var hann með mikið af starfsfólki,“ sagði Ljungberg.
,,Ég er ekki með mikið starfsfólk. Það er ekki auðvelt að vinna svona í marga mánuði en þetta er undir félaginu komið.“