Jose Mourinho, stjóri Tottenham, varar önnur félög við því að bestu leikmenn liðsins séu ekki á förum.
Mourinho átti gott og langt spjall við Daniel Levy, eiganda Tottenham, og ræddu þeir um leikmannamál félagsins.
,,Þetta snýst ekki um mig. Þetta snýst um herra Levy og félagið. Hann er með ákveðna sjón og hluti af henni er að gera liðið betra og stærra,“ sagði Mourinho.
,,Það er best að halda bestu leikmönnunum, það er augljóslega planið. Það er ekki eins og ég hafi fengið eitthvað loforð.“
,,Ég sagði ekki að ég kæmi bara ef þetta myndi gerast eða hitt. Levy útskýrði sína hugmyndafræði.“