Jose Mourinho segir að Manchester United hafi átt skilið að vinna hans menn í Tottenham í kvöld.
Mourinho mætti aftur á Old Trafford eftir árs fjarveru en hann var rekinn frá félaginu í desember í fyrra.
Tottenham tapaði 2-1 í Manchester í kvöld og segir Mourinho að þau úrslit hafi verið sanngjörn.
,,Þeir áttu skilið sigurinn miðað við fyrri hálfleikinn. Við byrjuðum ekki vel. Þeir voru besta liðið fyrstu 30 mínúturnar. Ég tel að þeir hafi átt sigurinn skilið,“ sagði Mourinho.
,,Miðað við hvernig við komum til leiks, það voru meiri tilfinningar í þessu hjá þeim. Til dæmis frammistaða Scott McTominay, hann stjórnaði leiknum.“