Ansi undarlegt atvik átti sér stað í gær er lið Barnsley spilaði við Hull í næst efstu deild Englands.
Barnsley vann góðan 3-1 heimasigur en þetta var aðeins annar sigur liðsins á öllu tímabilinu.
Það þurfti að stöðva leikinn í dágóðan tíma í gær eftir vandræði markmannsins Sami Radlinger.
Radlinger lenti í því að festast í marknetinu og þurfti öryggisvörður að klippa netið svo hann kæmist burt.
Markvörðurinn var svo flæktur og þurfti að kalla á hjálp eins og má sjá hér fyrir neðan.