Luis Suarez, leikmaður Barcelona, telur að Tammy Abraham geti teki við af honum hjá félaginu.
Suarez er kominn á seinni árin í boltanum en Abraham er rétt að byrja ferilinn hjá Chelsea þar sem hann hefur skorað mikið.
,,Augljóslega þá eru margir góðir ungir leikmenn þarna úti sem eru að fá að spila,“ sagði Suarez.
,,Ég er með ákveðna framherja í huga því ég er hrifinn af því hvernig þeir spila, hvort þeir séu gamlir eða ungir.“
,,Einn af þeim er Abraham, nían hjá Chelsea. Hann er mjög góður framherji, hann klárar færin sín vel og hreyfir sig vel miðað við aldur.“