Newcastle 2-2 Manchester City
0-1 Raheem Sterling(22′)
1-1 Jetro Willems(25′)
1-2 Kevin de Bruyne(82′)
2-2 Jonjo Shelvey(88′)
Fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið en leikið var á St. James’ Park í Newcastle.
Meistarar Manchester City mættu þar heimamönnum í Newcastle í leik sem endaði með jafntefli.
Raheem Sterling kom City yfir á 22. mínútu áður en Jetro WIllems jafnaði metin fyrir Newcastle stuttu seinna.
Staðan var lengi jöfn en undir lok leiksins skoraði Kevin de Bruyne annað mark City með frábæru skoti utan teigs.
Flestir bjuggust við að það myndi duga en áður en flautað var til leiksloka jafnaði Jonjo Shelvey metin með öðru geggjuðu marki.
Shelvey er fyrrum leikmaður Liverpool og gerði sínum fyrrum félögum mikinn greiða með því að tryggja stigið.