Það er komið á hreint hvaða liðum Ísland mætir í riðlakeppni EM næsta sumar ef liðið fer á lokamótið.
Ísland spilar við Rúmeníu í umspili í mars á næsta ári og þarf svo að spila annan úrslitaleik um að komast alla leið.
Ísland mun fara í ótrúlega erfiðan riðil í lokakeppninni en þar eru þrjú stórlið.
Í riðli F eru Þýskaland, Frakkland og Portúgal og ljóst að verkefnið verður gríðarlega erfitt.
Hér má sjá hvernig riðlarnir líta út.
Riðill A: Ítalía, Sviss, Tyrkland, Wales
Riðill B: Belgía, Rússland, Danmörk, Finnland
Riðill C: Ukraína, Holland, Austurríki, (Georgía/Hvíta-Rússland/Makedónía/Kosovo)
Riðill D: England, Króatía, Tékkland, (Skotland/Ísrael/Noregur/Serbía)
Riðill E: Spánn, Pólland, Svíþjóð, (Bosnía/Norður-Írland/Slóvakía/Írland)
Riðill F: Þýskaland, Frakkland, Portúgal, (Ísland/Rúmenía/Ungverjaland/Búlgaría)