fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
433Sport

Árni Þ. Þorgrímsson látinn: „KSÍ kveður fallinn félaga og sendir innilegar samúðarkveðjur“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 22. nóvember 2019 10:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Þ. Þorgrímsson, fyrrum varaformaður KSÍ, er látinn 88 ára að aldri. Árni var fæddur í Keflavík 6. ágúst 1931, en hann hóf ungur afskipti af íþróttum og á árunum frá 1940 til 1950 keppti hann í knattspyrnu með Ungmennafélagi Keflavíkur. Hann sat í stjórnum og ráðum UMFK og ÍBK um margra ára skeið, lengst af sem formaður og gjaldkeri Knattspyrnuráðs ÍBK, eða frá 1968 til ársins 1977.

Árni sat í stjórn KSÍ árin 1974 til 1984 og var varaformaður stjórnar um tíma. Hann gengdi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sambandið, var meðal annars ritari, formaður mótanefndar, formaður landsliðsnefndar, formaður kvennanefndar og formaður dómaranefndar.

Árni var sæmdur gullmerki ÍSÍ á fimmtugsafmæli sínu árið 1981 og gullmerki KSÍ árið árið 1984.

KSÍ kveður fallinn félaga og sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og ástvina.

Árni Þ. Þorgrímsson látinn – Knattspyrnusamband Íslands

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Óvænt félag í umræðuna um Lewandowski

Óvænt félag í umræðuna um Lewandowski
433Sport
Í gær

Kristján ósáttur eftir uppákomu í Sky Lagoon – „Var búinn að borga 30 þúsund kall fyrir þetta“

Kristján ósáttur eftir uppákomu í Sky Lagoon – „Var búinn að borga 30 þúsund kall fyrir þetta“
433Sport
Í gær

Fór um áhorfendur eftir þessi subbulegu meiðsli í London í gær – Mynd

Fór um áhorfendur eftir þessi subbulegu meiðsli í London í gær – Mynd
433Sport
Í gær

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni