Nicolas Pepe, leikmaður Arsenal, þarf tíma til að aðlagst segir goðsögn liðsins, Thierry Henry.
Pepe kostaði 72 milljónir punda í sumar en hefur lítið sýnt fyrir utan í örfáum leikjum.
Henry þekkir það vel að breyta um deild og segir að þetta sé ekki allt Pepe að kenna.
,,Þegar þú kemur eins og hann kom þá verður alltaf talað um þig og þú verður skotmark,“ sagði Henry.
,,Hann þarf að sjá til þess að hann hlusti ekki á þetta og standi sig. Fólk þarf að gleyma þessum verðmiða.“
,,Hann bað ekki um að vera keyptur á þessa upphæð. Það er ekki alltaf auðvelt að koma í nýtt lið og venjast öðrum leikstíl.“
,,Enska deildin er ekki eins og franska eða aðrar deildir. Hann þarf að aðlagast því og við þurfum að gefa honum tíma.“
,,Eins og staðan er þá er þetta ekki vandamál Pepe heldur Arsenal. Ef þeir væru að spila betur þá myndi hann kannski spila betur.“