fbpx
Laugardagur 20.september 2025
433Sport

Juventus bætist í hóp þeirra sem vilja norska undrabarnið

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 31. október 2019 14:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ný stjarna komin upp á sjónarsviðið í knattspyrnunni en sá strákur ber nafnið Erling Braut Haland. Haland er 19 ára gamall Norðmaður en hann skrifaði undir samning við RB Salzburg fyrr á þessu ári. Haland kom til félagsins frá Molde í Noregi þar sem hann skoraði 14 mörk í 39 deildarleikjum sem táningur. Strákurinn er einn allra efnilegasti leikmaður heims og er byrjaður að raða inn mörkum með Salzburg.

Norðmaðurinn hefur raðað inn mörkum frá Salzburg og skoraði tvö gegn Napoli í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Stuðningsmenn Manchester United grátbiðja félagið nú að kaupa norska framherjann, frekar en Mario Mandzukic sem er orðaður við félagið. Ole Gunnar Solskjær, stjóri United þarf hins vegar ekki að sjá mikið af Haland. Hann þjálfaði hann í Molde og gaf honum sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Samband þeirra er gott og telja ensk blöð að Solskjær hafi bestu spilin á hendi. Það sem talið var að gæti unnið gegn United er að Erling er sonur Alf-Inge Håland, ferill hans fór í vaskinn eftir gróft brot frá Roy Keane, þá fyrirliða United. Alf-Inge Håland lék þá með Leeds.

Nú hefur Juventus hins vegar áhuga á að fá Haland í stað Mandzukic sem félagið vill losna við. Ljóst er að mörg félög muni freista gæfunnar, til að fá Haland í janúar. Hann gæti kostað um 40 milljónir punda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tveir mikilvægir menn snúa aftur fyrir Amorim á morgun

Tveir mikilvægir menn snúa aftur fyrir Amorim á morgun
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Vilja fá Casemiro frítt næsta sumar

Vilja fá Casemiro frítt næsta sumar
433Sport
Í gær

Gerrard gæti verið að landa áhugaverðu starfi á Englandi

Gerrard gæti verið að landa áhugaverðu starfi á Englandi
433Sport
Í gær

Mourinho sendir pillu til Tyrklands og segist hafa valið rangt

Mourinho sendir pillu til Tyrklands og segist hafa valið rangt
433Sport
Í gær

Lokaumferð í deildarkeppni hjá konunum um helgina – Þór/KA og Víkingur berjast um síðasta lausa sætið

Lokaumferð í deildarkeppni hjá konunum um helgina – Þór/KA og Víkingur berjast um síðasta lausa sætið
433Sport
Í gær

Gleðifréttir fyrir Ruben Amorim

Gleðifréttir fyrir Ruben Amorim