fbpx
Mánudagur 29.desember 2025
433Sport

Frægur Íslandsvinur slasaður: Var farþegi hjá ölvuðum ökumanni – Liðsfélagar hans ákærðir

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. september 2019 10:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir leikmenn Derby á Englandi hafa verið ákærðir fyrir ölvunarakstur en þeir keyrðu á hvorn annan á þriðjudag. Lögreglan var kölluð til eftir að Range Rover og Mercedes bifreið skullu saman.

Það voru þeir Mason Bennett og Tom Lawrence leikmenn Derby sem voru undir stýri, þeir voru að koma úr gleðskap með leikmönnum Derby.

Ricard Keogh, fyrirliði Derby fór verst út úr atvikinu en hann sat aftur í Range Rover bifreið, Lawrence. Hann er brákaður á hendi og meiddur á hné.

Keogh verður frá í einhvern tíma en hann bjó um tíma á Íslandi, Keogh var í láni hjá Víkingi Reykjavik árið 2004, þá var hann í eigu Stoke. Dvöl hans á Íslandi keyrði feri hans í gang, Keogh hefur átt glæstan feril síðan á.

Lögreglan handtók bæði Bennett og Lawrence á vettvangi og eru þeir nú ákærðir fyrir ölvunarakstur. Derby er í tómu tjóni undir stjórn Philippe Cocu sem ræðir við fréttamenn síðar í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vinsælasti leikmaður í sögu félagsins á samskiptamiðlum

Vinsælasti leikmaður í sögu félagsins á samskiptamiðlum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Virðist ekki vilja snúa aftur í þjálfun eftir síðustu tvö störf – ,,Mér líður vel í sjónvarpi“

Virðist ekki vilja snúa aftur í þjálfun eftir síðustu tvö störf – ,,Mér líður vel í sjónvarpi“
433Sport
Í gær

Wenger nýr yfirmaður Arnars Þórs

Wenger nýr yfirmaður Arnars Þórs
433Sport
Í gær

Fengi miklu meiri gagnrýni ef hann væri ekki í Liverpool

Fengi miklu meiri gagnrýni ef hann væri ekki í Liverpool