fbpx
Mánudagur 22.september 2025
433

Yfirvinna hjá starfsfólki KSÍ í október: 17 landsleiki

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. september 2019 14:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landslið Íslands verða á ferð og flugi í október og leika 17 leiki í mánuðinum. Þess má geta að leikdagur er hjá íslensku landsliði á 16 af 31 degi mánaðarins.

A landslið kvenna mætir Frakklandi og Lettlandi í byrjun október. Liðið leikur fyrst æfingaleik við Frakkland 4. október áður en stelpurnar ferðast til Lettlands og leik þar í undankeppni EM 2021 8. október.

A landslið karla leikur tvo heimaleiki í október í undankeppni EM 2020. Fyrst mæta strákarnir heimsmeisturum Frakka föstudaginn 11. október áður en liðið tekur á móti Andorra mánudaginn 14. október.

U21 árs lið karla spilar einnig tvo leiki í mánuðinum í undankeppni EM 2021. Fyrst fara þeir til Svíþjóðar og mæta heimamönnum þar 11. október áður en þeir koma heim til Íslands og mæta Írlandi 15. október.

U19 ára lið karla leikur tvo æfingaleiki í Finnlandi. Þeir mæta Svíþjóð 8. október og Finnum 9. október.

U19 ára landslið kvenna leikur í undankeppni EM 2020 og mun riðill liðsins fara fram á Íslandi. Við hvetjum fólk til að mæta á völlinn og sjá framtíðar leikmenn landsliðsins spila.

Miðvikudaginn 2. október – Ísland – Grikkland – Víkingsvelli kl. 17:00
Laugardaginn 5. október – Ísland – Kasakstan – Würth vellinum kl. 14:00
Þriðjudaginn 8. október – Ísland – Finnland – Origo vellinum kl. 17:00

U17 ára lið karla leikur einnig í undankeppni EM 2020 og fara þeir til Skotlands. Liðið er þar með Króatíu, Skotlandi og Armeníu í riðli og leika dagana 22., 25. og 28. október.

Að lokum er það U15 ára lið karla sem fer á UEFA mót í Póllandi. Liðið leikur þar gegn Bandaríkjunum, Rússlandi og Póllandi dagana 21., 23. og 25. október.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Birgir segir breytinga þörf eftir uppákomuna í Keflavík en lausnin er í sjónmáli – „Hef áhyggjur af heilindum leiksins þarna“

Birgir segir breytinga þörf eftir uppákomuna í Keflavík en lausnin er í sjónmáli – „Hef áhyggjur af heilindum leiksins þarna“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Amorim harður á sínu – „Ekki einu sinni páfinn fær mig til að breyta“

Amorim harður á sínu – „Ekki einu sinni páfinn fær mig til að breyta“