fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
433

Ætlar að yfirgefa United vegna landsliðsins ef hann fær engar mínútur

Victor Pálsson
Föstudaginn 6. september 2019 17:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marcos Rojo, leikmaður Manchester United, mun reyna að komast burt frá félaginu í janúar ef hann fær ekki að spila.

Rojo fær engar mínútur hjá United þessa stundina en er enn hluti af argentínska landsliðinu.

Rojo hefur rætt við landsliðsþjálfarann Lionel Scaloni og heitir því að hann muni fá að spila fyrr eða seinna.

,,Ég hef rætt við Scaloni og hann sagði við mig að hann væri ánægður því ég spilaði mikið á undirbúningstímabilinu,“ sagði Rojo.

,,Hann sagði mér að ég hafi litið vel út og þess vegna hringdi í mig en sagði einnig að ég þyrfti að spila meira.“

,,Ég er viss að ef þú ætlar að spila fyrir landsliðið þá þarftu að spila fyrir félagsliðið. Þú þarft alltaf að vera til staðar og sýna af hverju þú ert þar.“

,,Ég gat farið til Everton en vegna félagsins eða þjálfarans þá var það ekki möguleiki.“

,,Nú verð ég að berjast þar til í desember og ef það virkar ekki þá mun ég reyna að komast burt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Skoraði fernu og lagði upp eitt í fyrsta leiknum

Skoraði fernu og lagði upp eitt í fyrsta leiknum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Vestri fær mikinn liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins

Vestri fær mikinn liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins