fbpx
Miðvikudagur 26.nóvember 2025
433Sport

Fyrrum stjarna dæmd í 14 ára fangelsi: Barnaperri sem braut ítrekað á sex ára frænku sinni

433
Föstudaginn 30. ágúst 2019 20:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jonathan Fabbro er nafn sem einhverjir ættu að kannast við en hann er fyrrum landsliðsmaður Paragvæ.

Fabbro var góður leikmaður á sínum tíma og lék á meðal annars með Boca Juniors og River Plate.

Hann er þó þekktastur fyrir tíma sinn hjá Guarani og Cerro Porteno í Paragvæ. Hann lagði skóna á hilluna árið 2017.

Fabbro hefur nú verið dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að brjóta kynferðislega á sex ára frænku sinni.

Barnaníðingurinn var fundinn sekur um að hafa brotið allavega fimm sinnum á stelpunni frá 2015 til 2017.

Hann var fyrst handtekinn fyrir tveimur árum síðan en hefur ávallt neitað sök. Nú er búið að dæma í málinu.

,,Dóttir mín er mjög hugrökk því hún ákvað að tjá sig. Ég vil bara fara heim og faðma hana. Allt er sársaukafullt,“ sagði móðir stelpunnar.

Bróðir stelpunnar tjáði sig einnig í dómstólnum og segir hann að fangelsisdómurinn sé alltof stuttur og að Fabbro ætti skilið að sitja inni alla ævi.

The Times greinir frá því að það hafi liðið yfir kærustu Fabbro, Larissa Riquelme, í salnum en hún er fyrirsæta frá Paragvæ.

Fabbro er mjög þekktur í Suður-Ameríku en hann lék 13 landsleiki fyrir sterkt landslið Paragvæ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Hinn bráðefnilegi Valdimar Arnar skrifar undir hjá Fredrikstad – Skoraði 34 mörk í sumar

Hinn bráðefnilegi Valdimar Arnar skrifar undir hjá Fredrikstad – Skoraði 34 mörk í sumar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ronaldo velur staðinn fyrir giftingu sína næsta sumar – Kirkjan var byggð árið 1514

Ronaldo velur staðinn fyrir giftingu sína næsta sumar – Kirkjan var byggð árið 1514
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Chelsea fór illa með Barcelona – Óvænt í Manchester

Chelsea fór illa með Barcelona – Óvænt í Manchester
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Efnilegur leikmaður frá FH í Val

Efnilegur leikmaður frá FH í Val