fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
433Sport

Handtekinn grunaður um manndráp af gáleysi: Flugmaður Sala var ekki með réttindi

433
Fimmtudaginn 20. júní 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hræðilegt slys átti sér stað þann 21. janúar síðastliðinn er framherjinn Emiliano Sala og flugmaðurinn David Ibbotson voru farþegar í flugvél sem hrapaði. Sala og Ibbotson voru á leið frá Nantes í Frakklandi til Cardiff í Wales þar sem Sala hafði skrifað undir.

Hann átti að verða dýrasti leikmaður í sögu Cardiff og kostaði félagið 15 milljónir punda. Flugvélin komst hins vegar aldrei á leiðarenda og fannst nokkrum vikum síðast á sjávarbotni.

Búið er að finna lík Sala sem lést í slysinu en ekki hefur lík Ibbotson fundist.

Það var Ibbotson sem sá um að fljúga vélinni til Cardiff í stað David Henderson sem var upphaflega fengið í verkið. Á síðustu stundu hætti Henderson hins vegar við og bað Ibbotson um að leysa sig af.

Henderson hefur nú verið handtekinn en hann bað Ibbotson um að fljúga vélinni. Sá síðarnefndi hafði hins vegar ekki réttindi til að fljúga vélinni að kvöldi til.

Henderson var handtekinn grunaður um manndráp af gáleysi og gæti verið á leið á bakvið lás og slá í langan tíma. Málið verður tekið fyrir á næstu vikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Tottenham í sárum en skoðar þessa kosti – Eze í læknisskoðun hjá Arsenal á morgun

Tottenham í sárum en skoðar þessa kosti – Eze í læknisskoðun hjá Arsenal á morgun
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Blikar geta komist nær hundruðum milljóna í kvöld

Blikar geta komist nær hundruðum milljóna í kvöld
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gefast upp á Hojlund sem var ekki sannfærður um tilboðið

Gefast upp á Hojlund sem var ekki sannfærður um tilboðið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Krakkarnir kölluðu hann rottu þegar hann mætti til vinnu í gær

Krakkarnir kölluðu hann rottu þegar hann mætti til vinnu í gær
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vonar að Cunha læri mannasiði á Old Trafford – Telur að skapið geti komið honum í vandræði

Vonar að Cunha læri mannasiði á Old Trafford – Telur að skapið geti komið honum í vandræði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Dóttirin skipaði honum að raka sig – „Sagði að þetta væri hræðilegt“

Dóttirin skipaði honum að raka sig – „Sagði að þetta væri hræðilegt“