,Það vakti athygli að leikmenn HK og Breiðabliks voru saman á Gló að borða fyrir leik,“ sagði Hjörvar Hafliðason í Dr. Football, hlaðvarpsþætti sínum í gær.
HK og Breiðablik gerðu 2-2 jafntefli í Pepsi Max-deildinni á laugardag, grannaslagur af bestu gerð. Rígurinn á milli liðanna hefur oft verið mikill.
Það vakti hins vegar athygli að sjá Arnþór Ara Atlason, leikmann HK snæða með Höskuldi Gunnlaugssyni og Viktori Margeirssyni, fjórum tímum fyrir leik. ,,Ég get alveg lofað þér því að ég hefði ekki farið með Gulla Gull á Hlölla hérna 2007,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson, sérfræðingur þáttarins og fyrrum leikmaður Breiðabliks eftir leik.
,,Þetta er ófyrirgefanlegt,“ sagði Mikael Nikulásson fyrrum leikmaður HK og hélt áfram. ,,Þetta er íslenskur fótbolti í hnotskurn í dag og íslenskir leikmenn.“
Viktor Örn gerir grín af þessari umrðæðu á Twitter og birtir mynd með, þar sést hann taka ansi grófa tæklingu á Arnþór í leiknum. ,,Takk fyrir kaffibollann á gameday Arnþór,“ skrifar Viktor á Twitter en hann jafnaði leikinn fyrir Blikar, í uppbótartíma.
Mikael sagði að það kæmi lítið á óvart, en hann hefði ekki séð þetta gerast í gamla daga.
,,Ég sæi ekki alveg Óla Þórðar og Pétur Ormslev á Ask fyrir ÍA – Fram i gamla daga, rétt fyrir leik. Ég sé það ekki alveg fyrir. Óli hefði sennilega rotað hann, ef hann hefði séð hann þar inni.“
Arnþór gerir grín að umræðunni í svari til Viktors. ,,Þessi hvolpasveitartækling náði mér reyndar ekki einu sinni í jörðina, en þú splæsir næsta kaffibolla! Verst að Óli Þórðar og Pétur Ormslev og aðrir jálkar verða brjálaðir.“