Gary Neville, fyrrum fyrirliði Manchester Unied vill að Ed Woodward hætti að stýra leikmannakaupum og samningum hjá Manchester United. Neville hefur fengið nóg af starfi hans.
Woodward vill ráða inn yfirmann knattspyrnumála og hefur rætt við Rio Ferdinand og Darren Fletcher um það, Neville finnst það glórulaust. Hann vill mann með reynslu.
Ljóst er að miklar breytingar verða hjá Manchester United í sumar, félagið er á slæmum stað innan vallar en utan vallar blómstarar allt. Tekjurnar undir stjórn Woodward hafa aukist mikið.
,,Hvernig má það að vera að fjórir fyrrum leikmenn, sem hafa aldreið verið í viðskiptum, aldrei verið yfirmenn knattspyrnumála. Koma til greina í þetta hlutverk hjá stærsta félagi í heimi? Þetta er til skammar,“ sagði Neville.
,,Það þarf að hreinsa til í búningsklefanum, það þarf að hreinsa félagið. Það er alls staðar, það þarf að finna einhvern sem stjórnar knattspyrnuhlutanum.“
,,Þeir ættu að taka þá sem stjórna félaginu í dag, setja þá í viðskiptahlutann sem er í London.“
,,Það á að fá inn menn sem stjórna fótboltanum, það á að fá þá bestu í bransanum. Ekki bara einhvern sem var hér sem leikmaður, það á að finna mann sem stýrir fótboltanum, svo er hann með fólk undir sér og svo þjálfarinn. Þá verður starf hans miklu einfaldara.“
,,Ed Woodward hefur fengið sjö ár í þessu ári, hann hefur fengið sitt tækifæri að stýra fótboltanum.“