Jordan Pickford, markmaður Everton, skellti sér aðeins út á lífið um helgina eftir leik liðsins við West Ham. Pickford er uppalinn hjá Sunderland og hann sneri aftur þangað og skemmti sér með vinum sínum.
Markmaðurinn lenti þó í vandræðum fyrir utan skemmtistað en þar áttu sér stað ansi harkaleg slagsmál. Ekki er ljóst hvernig þessi slagsmál byrjuðu en myndband af þeim hefur verið birt á netið.
Lögreglan í Sunderland er með málið til rannsóknar en ensk blöð fjalla miki um málið, enda er Pickford fremsti markvörður Englands í dag og stendur vaktina í landsliðinu.
Lögreglan var kölluð á vettvang eftir að höggin fengu að fljúga en dyravörður er sagður vera með glóðarauga, eftir tvö högg frá Pickford.
Ensk blöð segja að Pickford hafi verið búinn að drekka allan daginn, hann hafði verið að horfa á sitt gamla félag spila á bar.
,,Jordan hagaði sér eins og fífl,“ sagði einn aðili sem var á svæðinu og horfði á Pickford í slagsmálum. Vinir hans náðu að draga hann í burtu áður en lögreglan kom á svæðið.
,,Hann hafði verið á River Bar fyrr um daginn, labbaði þar um eins og spaði, keyrði upp og niður götuna á Lamborghini bifreið sinni.“
,,Hann var með um tíu einstaklingum, þeir náðu að draga hann burt og skutla honum í leigubíl.“
Pickford spilar mikilvægt hlutverk í liði Everton þar sem Gylfi Þór Sigurðsson er fastamaður á miðjunni.
Þeir léku báðir með liði Everton á laugardaginn er liðið vann sannfærandi 2-0 sigur á West Ham.
Hér má sjá myndband af slagsmálunum.
Jordan Pickford fighting like a nonce pic.twitter.com/rls9vcBV9e
— HeadzGone (@HeadzGone) 1 April 2019