fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
433Sport

Freyr útskýrir byrjunarlið Íslands: „Albert er búinn að vera mjög góður á æfingum“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 25. mars 2019 18:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Snævar Jónsson skrifar frá París:

Íslenska landsliðið, heimsækir Frakkland í undankeppni EM 2020 í París í kvöld. Bæði lið eru með þrjú stig, eftir fyrstu umferð í keppninni. Ísland vann sigur á Andorra en Frakkar fóru létt með Moldavíu.

Frakkar urðu Heimsmeistarar síðasta sumar, það er því ljóst að leikurinn er verðugt verkefni fyrir lærisveina Erik Hamren. Ekki voru tíðindin í gær heldur góð, þegar ljóst var að Jóhann Berg Guðmundsson yrði ekki með, sökum meiðsla.

Albert Guðmundsson byrjar í framlínu Íslands en Alfreð Finnbogason er aðeins klár í rúman hálftíma, hann er að stíga upp úr meiðslum.

Þá fer Erik Hamren í 3-5-2 kerfið. Þannig koma Sverrir Ingi Ingason og Hörður Björgvin Magnússon inn í varnarlínuna. Rúnar Már Sigurjónsson kemur svo inn á miðsvæðið.

Arnór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Alfreð Finnbogason og Ari Freyr Skúlason fara úr byrjunarliðinu frá sigrinum, gegn Andorra.

Smelltu hér til að sjá byrjunarlið Íslands

„Það er margþætt. Fyrst og fremst að loka á það sem við vitum að er þeirra helsti styrkleiki, hvert þeir leita í sínum sóknarleik. Við teljum að það henti okkur betur í þessum leik, á þeirra heimavelli, að loka á það með því að spila með hávaxna fimm manna lína til baka og sterka miðjublokk þar fyrir framan. Allir þeir þrír sem eru þar fyrir framan hafa gríðarlega hlaupagetu og geta hjálpað okkur að loka þeim svæðum sem þarf að loka. Svo eru Gylfi og Albert þar fyrir framan,“ sagði Freyr við RÚV

Alfreð er ekki með en gæti komið inn sem varamaður.

„Það er ekkert bakslag eftir fyrri leikinn. Hann er eiginlega á sama stað, hann er auðvitað smá ryðgaður eftir leikinn (gegn Andorra), það er stutt á milli leikja og hann er búinn að vera í löngum meiðslum. En Alfreð getur tekið þátt í leiknum í dag en hversu mikið verður bara að ráðast eftir því hvernig leikurinn þróast.“

„Albert er búinn að vera mjög góður á æfingum, hann er ferskur. Hann spilaði varnarleikinn mjög vel þegar hann fékk sénsinn í október á móti Frökkunum, tveir frammi. Albert hefur eitt, sem við vitum öll, það er X-factor til að gera eitthvað óvænt. Við þurfum á því að halda í svona leikjum og ég hef mikla trú á að Albert eigi eftir að gera eitthvað skemmtilegt í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Van Dijk vonar innilega að Chiesa verði áfram

Van Dijk vonar innilega að Chiesa verði áfram
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Sammála um að Guardiola hafi logið að öllum í gær

Sammála um að Guardiola hafi logið að öllum í gær
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Enn eitt áfallið fyrir Chelsea

Enn eitt áfallið fyrir Chelsea
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ungur drengur í Bandaríkjunum vekur mikla athygli – Yfirgaf bílinn til að fá áritun frá hetjunni

Ungur drengur í Bandaríkjunum vekur mikla athygli – Yfirgaf bílinn til að fá áritun frá hetjunni
433Sport
Í gær

Daníel Tristan með stórleik og Ísak Snær heldur áfram að skora

Daníel Tristan með stórleik og Ísak Snær heldur áfram að skora
433Sport
Í gær

Ofurtölvan spáir United 12. sæti og Liverpool titlinum

Ofurtölvan spáir United 12. sæti og Liverpool titlinum
433Sport
Í gær

Arteta kannaði málið og allir völdu Ödegaard

Arteta kannaði málið og allir völdu Ödegaard
433Sport
Í gær

Allir í stúkunni stóðu saman og heiðruðu minningu Jota

Allir í stúkunni stóðu saman og heiðruðu minningu Jota