fbpx
Sunnudagur 17.ágúst 2025
433Sport

Franskur blaðamaður gróf upp gamla mynd af Gylfa og Alfreð: Þarna voru þeir efnilegir í Breiðabliki

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 24. mars 2019 15:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Snævar Jónsson skrifar frá París:

Íslenska landsliðið kom til Parísar í gærkvöldi og mun síðdegis í dag æfa á Stade de France í úthverfi Parísar. Liðið leikur sov við heimamenn í undankeppni EM á morgun.

Íslenska liðið, vann góðan sigur á Andorra á föstudag og kemur til Parísar, þar sem stig eða sigur væru algjör bónus.

Hvort íslenska liðið komist í lokakeppni EM, stendur hvorki né fellur með því hvað gerist á morgun. Íslenska liðið hefur þó hins vegar oftar en ekki átt sína bestu leiki á erfiðum útivöllum, nægir að nefna sigra í Hollandi og Tyrklandi.

Í eldlínunni á morgun verða að sjálfsögðu Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason, franski blaðamaðurinn Johann Crochet, fjallar um þá á Twitter.

Með færslu sinni lætur hann fylgja skemmtilega mynd, myndin er af þeim félögum þegar þeir voru efnilegir í Breiðabliki. Þar léku Gylfi og Alfreð saman og gerðu það gott.

,,Tveir af leiðtogum Íslands í dag, saman í Breiðabliki,“ skrifar Crochet en með þeim á myndinni er bakarinn og þjálfarinn, Valdimar Valdimarsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Maresca vill hjálp frá stjórninni – ,,Þurfum liðsstyrk“

Maresca vill hjálp frá stjórninni – ,,Þurfum liðsstyrk“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Á leið aftur til Englands eftir misheppnaða dvöl á Ítalíu

Á leið aftur til Englands eftir misheppnaða dvöl á Ítalíu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Chiesa staðfestir hvað hann vill gera í sumar

Chiesa staðfestir hvað hann vill gera í sumar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Leiður því Gyokores valdi Arsenal frekar en United

Leiður því Gyokores valdi Arsenal frekar en United
433Sport
Í gær

Hefur ekki farið í klippingu í um 300 daga – Tók áskorun sem hann vonast til að sigra í vetur

Hefur ekki farið í klippingu í um 300 daga – Tók áskorun sem hann vonast til að sigra í vetur
433Sport
Í gær

Leikmaður City nú orðaður við Forest

Leikmaður City nú orðaður við Forest
433Sport
Í gær

Chelsea móðgað eftir tilboð frá Þýskalandi

Chelsea móðgað eftir tilboð frá Þýskalandi
433Sport
Í gær

Rooney bjartsýnn og hefur trú á Amroim

Rooney bjartsýnn og hefur trú á Amroim