fbpx
Sunnudagur 17.ágúst 2025
433Sport

Deschamps rifjaði upp EM 2016: Sér mun á leikstíl Íslands þegar Kolbeinn og Jón Daði eru ekki

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 24. mars 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Snævar Jónsson skrifar frá París:

,,Við erum að spila okkar besta leik til að vinna Ísland,“ sagði Didier Deschamps, þjálfari Frakklands. Ísland heimsækir, Heimsmeistarana í París á morgun. Um er að ræða leik í undankeppni EM, hart verður barist.

Ísland mætti Frakklandi í æfingaleik í október sem fór 2-2, sá leikur fór ekki fram á Stade de France. Síðast þegar Ísland heimsótti þjóðarleikvanginn, var á EM í Frakklandi.

Þar unnu heimamenn 5-2 sigur en íslenska liðið hafði slegið í gegn á EM 2016. ,,Það eru þrjú ár síðan, við lékum mjög vel í þeim leik.“

,,Ísland hafði komið mörgum á óvart fyrir leikinn gegn okkur, þeir eru sterkir í löngum innköstum og föstum leikatriðum. Það hefur komið mörgum liðum í vandræðu.“

,,Þeir eru með marga leikmenn sem voru á EM en það eru líka nokkrir farnir,“ sagði Deschamps sem hefur tekið eftir breytingu í leikstíl Íslands. Hann minntist á framherjana tvo sem Ísland hafði þá, Kolbein Sigþórsson og Jón Daða Böðvarsson. Hvorugur er með á morgun.

,,Þeir eru ekki eins mikið að sparka bara langt, þeir reyna að halda boltanum á jörðinni. Framherjarnir á EM voru erfiðir við að eiga en liðið spilar ekki sama leikstíl í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Maresca vill hjálp frá stjórninni – ,,Þurfum liðsstyrk“

Maresca vill hjálp frá stjórninni – ,,Þurfum liðsstyrk“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Á leið aftur til Englands eftir misheppnaða dvöl á Ítalíu

Á leið aftur til Englands eftir misheppnaða dvöl á Ítalíu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Chiesa staðfestir hvað hann vill gera í sumar

Chiesa staðfestir hvað hann vill gera í sumar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Leiður því Gyokores valdi Arsenal frekar en United

Leiður því Gyokores valdi Arsenal frekar en United
433Sport
Í gær

Hefur ekki farið í klippingu í um 300 daga – Tók áskorun sem hann vonast til að sigra í vetur

Hefur ekki farið í klippingu í um 300 daga – Tók áskorun sem hann vonast til að sigra í vetur
433Sport
Í gær

Leikmaður City nú orðaður við Forest

Leikmaður City nú orðaður við Forest
433Sport
Í gær

Chelsea móðgað eftir tilboð frá Þýskalandi

Chelsea móðgað eftir tilboð frá Þýskalandi
433Sport
Í gær

Rooney bjartsýnn og hefur trú á Amroim

Rooney bjartsýnn og hefur trú á Amroim