fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
433Sport

Ótrúlegur Ronaldo kom Juventus áfram – City skoraði sjö mörk

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 12. mars 2019 21:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir sigur á liði Schalke í kvöld.

City fékk Schalke í heimsókn á Etihad völlinn en fyrri leik liðanna lauk með 3-2 sigri enska liðsins.

Heimamenn voru í miklu stuði í leik kvöldsins og unnu sannfærandi 6-0 sigur á Þjóðverjunum.

Staðan var 3-0 eftir fyrri hálfleik og bætti liðið svo við fjórum mörkum í seinni og fer samanlagt áfram, 10-2.

Juventus mætti liði Atletico Madrid á sama tíma en Atletico vann fyrri leikinn 2-0 á Spáni.

Juventus gafst þó engan veginn upp og var miklu sterkari aðilinn í leik kvöldsins.

Cristiano Ronaldo elskar Meistaradeildina og hann sá um að koma Juventus áfram í næstu umferð.

Ronaldo skoraði þrennu í 3-0 sigri Juventus og fer liðið því samanlagt áfram 3-2.

Manchester City 7-0 Schalke (10-2)
1-0 Sergio Aguero(víti, 35′)
2-0 Sergio Aguero(38′)
3-0 Leroy Sane(43′)
4-0 Raheem Sterling(56′)
5-0 Bernardo Silva(71′)
6-0 Phil Foden(78′)
7-0 Gabriel Jesus(84′)

Juventus 3-0 Atletico Madrid (3-2)
1-0 Cristiano Ronaldo(27′)
2-0 Cristiano Ronaldo(48′)
3-0 Cristiano Ronaldo(víti, 86′)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Leikmenn United skilja ákvörðun Amorim

Leikmenn United skilja ákvörðun Amorim
433Sport
Í gær

Carragher vonar að Isak mæti ekki í sumar

Carragher vonar að Isak mæti ekki í sumar
433Sport
Í gær

Margir steinhissa eftir ummæli stjórnmálakonunnar – Bjóst við því að hann væri frá Bandaríkjunum

Margir steinhissa eftir ummæli stjórnmálakonunnar – Bjóst við því að hann væri frá Bandaríkjunum