fbpx
Laugardagur 09.ágúst 2025
433Sport

Öryggismyndavélin náði því þegar Ingi Björn tapaði sér í gleðinni: ,,Áttu ekki að vera að vinna?“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 7. mars 2019 11:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United er komið áfram í Meistaradeild Evrópu eftir leik við frönsku meistarana Paris Saint-Germain í gær.

Um var að ræða seinni leik liðanna en United tapaði fyrri leiknum 2-0 á sínum heimavelli, Old Trafford. Það var boðið upp á skemmtilegan leik í Frakklandi þar sem United hafði betur með þremur mörkum gegn einu.

Romelu Lukaku var heitur í gær og skoraði tvö mörk fyrir gestina í fyrri hálfleik. Juan Bernat skoraði þó einnig fyrir PSG en staðan var 2-1 eftir fyrstu 45.

Á 90. mínútu leiksins þá fékk United svo vítaspyrnu en Presnel Kimbempe fékk þá knöttinn í höndina innan teigs og steig Marcus Rashford á punktinn. Rashford skoraði af miklu öryggi framhjá Gianluigi Buffon í markinu og tryggði United 3-1 sigur og fer liðið því áfram á mörgkum skoruðum á útivelli.

Ingi Björn Grétarsson var staddur í vinnu sinni þegar leikurinn fór fram. Hann fylgdist þó með leiknum í París. ,,Vissu þið að United fékk víti á 90 min á móti PSG áðan, ég sá það í sjónvarpinu,“ skrifar Ingi á Facebook.

Vinir Inga hafa gaman af myndbandinu og einn spyr. ,,Áttu ekki að vera að vinna?.“ Ingi svaraði léttur og sagðist hafa sleppt kaffinu.

Hann birtir svo myndband úr öryggismyndavél á svæðinu þar sem viðbrögð hans náðust. Óhætt er að segja að Ingi hafi verið ansi glaður.

Atvikið má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Galdur skrifar undir hjá KR

Galdur skrifar undir hjá KR
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Miðasalan á úrslitaleikinn fer af stað

Miðasalan á úrslitaleikinn fer af stað
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Segir að stuðningsmenn Víkinga þurfi að gæta sín í Kaupmannahöfn – „Þeir voru ansi niðurlútir og skömmuðust sín“

Segir að stuðningsmenn Víkinga þurfi að gæta sín í Kaupmannahöfn – „Þeir voru ansi niðurlútir og skömmuðust sín“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Íslenskur stuðningsmaður laminn í andlitið fyrir að svara í símann – „Það endaði í blóðugum slag“

Íslenskur stuðningsmaður laminn í andlitið fyrir að svara í símann – „Það endaði í blóðugum slag“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Þessir eru tilnefndir til besta stjórans

Þessir eru tilnefndir til besta stjórans
433Sport
Í gær

Víkingar fóru illa með dönsku risana

Víkingar fóru illa með dönsku risana
433Sport
Í gær

Eiginkonan sögð gefa ýmislegt í skyn með þessari myndbirtingu

Eiginkonan sögð gefa ýmislegt í skyn með þessari myndbirtingu
433Sport
Í gær

Solskjær fær leikmann með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni

Solskjær fær leikmann með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Í gær

Nýliðarnir sækja reynslumikinn markvörð

Nýliðarnir sækja reynslumikinn markvörð