fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
433Sport

Gylfi vonast eftir sms skilboðum frá Eiði Smára: ,,Ég vildi verða eins og hann“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 27. febrúar 2019 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæran leik fyrir lið Everton sem spilaði við Cardiff í Wales í gær.

Leikið er í ensku úrvalsdeildinni en leiknum lauk með sannfærandi 3-0 sigri gestanna frá Liverpool.

Gylfi skoraði tvö af mörkum Everton í leiknum og er kominn með 57 mörk í úrvalsdeildinni.

Gylfi var að skora sitt 11. mark í deildinni á tímabilinu og hefur jafnað eigið markamet sem kom tímabilið 2015/2016 með Swansea.

Með mörkum sínum í gær er Gylfi orðinn markahæsti Íslendingurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, hann bæti met sem Eiður Smári Guðjohnsen átti.

,,Ég vissi af þessu meti og ég hef beðið eftir því að bæta það,“ sagði Gylfi eftir sigurinn á Cardiff í gær.

Þegar Gylfi var að alast upp var Eiður Smári fyrirmynd fyrir ungt knattspyrnufólk. ,,Ég er mjög stoltur, þegar ég ólst upp var Eiður Smári sá sem maður horfir til.“

,,Ég vildi verða eins og hann og spila í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Gylfi en Eiður Smári lék með Chelsea og fleiri liðum í deild þeirra bestu.

,,Vonandi sendir hann mér sms skilaboð, það er frábært að komast loks yfir hann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt klappað og klárt – United og Leipzig ná samkomulagi um kaupverðið

Allt klappað og klárt – United og Leipzig ná samkomulagi um kaupverðið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sjáðu stórfurðulegt atvik í Úlfarsárdal – Rikki G trúði ekki eigin augum

Sjáðu stórfurðulegt atvik í Úlfarsárdal – Rikki G trúði ekki eigin augum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Dagný grætur í hjartnæmu kveðjumyndbandi

Dagný grætur í hjartnæmu kveðjumyndbandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Hafnað fjölda tilboða eftir brottför frá United – Býðst nú að vera áfram í úrvalsdeildinni

Hafnað fjölda tilboða eftir brottför frá United – Býðst nú að vera áfram í úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Launapakki Darwin Nunez í Sádí opinberaður – Fær þrefalt meira en hjá Liverpool og þénar meira en bestu leikmenn heims

Launapakki Darwin Nunez í Sádí opinberaður – Fær þrefalt meira en hjá Liverpool og þénar meira en bestu leikmenn heims
433Sport
Í gær

Fyrrum leikmaður Arsenal og Liverpool gæti snúið aftur

Fyrrum leikmaður Arsenal og Liverpool gæti snúið aftur
433Sport
Í gær

Uppselt í Fossvoginum er Danirnir koma í heimsókn

Uppselt í Fossvoginum er Danirnir koma í heimsókn