Knattspyrnumaðurinn, Albert Brynjar Ingason átti sér þann draum að taka kynþokkafulla mynd af sér líkt og Sunneva Einarsdóttir, áhrifavaldur og vinkona hennar tóku.
Albert hafði gengið með þessa hugmynd í maganum áður en hann sendi á fyrrum samherja sinn, Ásgeir Börk Ásgeirsson, hvort hann væri klár í slaginn.
,,Eftir að hafa séð þessa mynd á Instagram hjá Sunnevu Einars fór ég að hugsa… Ætli ég geti fengið vin minn yfir í svona heimsókn,“ skrifar Albert.
Sunneva er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins og hefur þúsundir fylgjenda. Ásgeir hafði ekki áhuga á að taka þátt í þessari myndatöku með Alberti.
,,Ég ákvað bara að athuga og sendi skilaboð á vin minn Ásgeir Börk,“ sagði Albert og svar Ásgeirs var áhugavert.
,,Ertu loksins búinn að missa allt vit,“ sagði Ásgeir og draumur Alberts þarf að bíða um stund.
Eftir að hafa séð þessa mynd á Instagram hjá Sunnevu Einars fór ég að hugsa… Ætli ég geti fengið vin minn yfir í svona heimsókn.
Svo ég ákvað bara að athuga og sendi skilaboð á vin minn Ásgeir Börk. pic.twitter.com/zIeC7nqI08
— Albert Ingason. (@Snjalli) February 27, 2019