Saido Berahino, leikmaður Stoke City á Englandi, var handtekinn í nótt en frá þessu er greint í kvöld.
Berahino var stöðvaður af lögreglunni í nótt fyrir utan VQ, veitingastað sem er opinn allan sólahringinn.
Berahino var í annarlegu ástandi en hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengið.
Framherjinn ræddi við lögregluna og vildi meina að hann hefði verið að flýja undan glæpamönnum sem stálu úrinu hans.
Atvikið átti sér stað klukkan þrjú í nótt en lögreglan varð vitni af bifreið Berahino bruna mjög hratt af stað.
Samkvæmt fregnum mun Stoke einnig taka á málinu og er möguleiki á að Berahino verði einnig refsað af sínu félagsliði.