Paul Pogba, leikmaður Manchester United, vill framlengja samning sinn við félagið.
Enskir miðlar greina frá þessu í dag en Pogba gekk í raðir liðsins frá Juventus fyrir tveimur árum.
Pogba var óánægður hjá United fyrr á tímabilinu er Jose Mourinho var við stjórnvölin.
Frakkinn hefur nú tekið ákvörðun um að framlengja samning sinn en hann er ánægður undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
Pogba vill fá að ræða við félagið á næstu vikum í von um að hann geti skrifað undir nýjan samning.