Jose Mourinho, fyrrum stjóri Manchester United, hefur staðfest það að hann hafi fengið tilboð frá sínu fyrrum félagi, Benfica.
Mourinho vildi ekki fara út í of mörg smáatriði og segir að besta leiðin til að virða félagið sé að láta eins og ekkert tilboð hafi borist.
Mourinho hóf þjálfaraferilinn hjá portúgalska stórliðinu áður en hann tók við Porto.
,,Ég vil ekki fara þangað en besta leiðin til að virða frábært félag eins og Benfica og þeirra forseta er að segja að ég hafi ekki fengið tilboðið,“ sagði Mourinho.
,,Ef ég hefði áhuga þá myndi Benfica vita af minni ákvörðun fyrst allra. Ég hef engan áhuga á að vinna í Portúgal.“
Það er því óljóst hvað Mourinho gerir næst en hann er orðaður við sitt fyrrum félag, Real Madrid.