

Tottenham tekur á móti Arsenal í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar á morgun klukkan 12:30.
Tottenham náði í gott stig á Anfield í síðustu umferð en liðið situr í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 49 stig.
Arsenal er í sjötta sætinu með 45 stig, fjórum stigum á eftir Tottenham en getur brúað bilið í einungis eitt stig með sigri á morgun.
Enski miðillin Guardian reiknar með því að þeir Pierre-Emerick Aubameyang og Henrikh Mkhitaryan verði báðir í byrjunarliði Arsenal en þeir komu til félagsins í janúarglugganum.
Líkleg byrjunarlið má sjá hér fyrir neðan.
