Virgil van Dijk, leikmaður Liverpool, efast ekki um að félagið sé að skoða samherja sinn í hollenska landsliðinu, Matthjis de Ligt.
De Ligt er aðeins 19 ára gamall en hann er samningsbundinn Ajax. Öll stærstu félög heims hafa sýnt honum áhuga.
,,Hann er nú þegar kominn mjög langt, sérstaklega miðað við aldur,“ sagði Van Dijk við De Telegraaf.
,,Hann er góður varnarmaður, góður og rólegur strákur. Hann veit hvað hann vill og vonandi tekur hann rétta skrefið.“
,,Hann verður á óskalista Liverpool því það eru margir njósnarar sem starfa fyrir félagið. Ef þeir þurfa á minni skoðun að halda þá fá þeir hana.“
,,Þeir munu ekki borga jafn mikið fyrir hann og mig. Upphæðin fyrir mig var mjög há. Þetta verður ekki eins klikkað.“
,,Ef hann verður einhvern tímann dýrasti varnarmaðurinn þá verð ég sá fyrsti til að óska honum til hamingju.“