fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
433

Victor Lindelof sendir Mourinho skýr skilaboð

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 13. febrúar 2018 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Victor Lindelof, varnarmaður Manchester United hefur hvatt Jose Mourinho, stjóra liðsins til þess að nota sig meira á næstu vikum.

Varnarmaðurinn hefur ekki átt fast sæti í liði United á þessari leiktíð en hann kom til félagsins frá Benfica, síðasta sumar.

United hefur verið í vandræðum, varnarlega að undanförnu og voru miðverðir liðsins harðlega gagnrýndir eftir tapið gegn Newcastle um helgina.

„Ég get spilað sem hægri bakvörður, ég spilaði þá stöðu þegar að ég var yngri,“ sagði Lindelof.

„Ég hef hins vegar spilað sem miðvörður, undanfarin ár og þar líður mér best. Ég get hins vegar spilað margar stöður á vellinum.“

„Ég þarf að fá traustið til þess að geta sýnt hvað ég get,“ sagði hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Stórtíðindi frá Liverpool – Semja um starfslok við Salah sem fer frítt í sumar

Stórtíðindi frá Liverpool – Semja um starfslok við Salah sem fer frítt í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eyjamenn stórhuga – Segir metnað og framtíðarsýn gjarnan hafa skort

Eyjamenn stórhuga – Segir metnað og framtíðarsýn gjarnan hafa skort
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Treysta Howe áfram og ætla í miklar breytingar á hópnum í sumar

Treysta Howe áfram og ætla í miklar breytingar á hópnum í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Bayern til í að selja meiðslapésa og United hefur áhuga

Bayern til í að selja meiðslapésa og United hefur áhuga